Ísland er vinsæll ferðamannastaður og ferðamenn streyma til landsins. Hins vegar hefur Ísland ekki alltaf verið í ,,vinsældinni" hjá útlendingum og ástæða þess að fleiri ferðamenn koma til Íslands núna eru þó nokkuð margar.
Á árunum 2008 til 2010 var fjölgun ferðamanna lítil og það var lítið verið að fjárfesta í ferðaþjónustu út af efnahagskreppunni á Íslandi. Hins vegar gerði lélegt gengi krónunnar Ísland að hagkvæmum ferðamannastað.
Meginástæða fjölgunar ferðamanna er tilkomin vegna gossins í Eyjafjallajökli. Þegar hann gaus árið 2010 hafði það neikvæð áhrif á komu ferðamanna og flugumferð í Evrópu lá niðri um tíma. Þetta dróg mikla athygli að Íslandi og gaf landinu góða kynningu fyrir ferðamenn. Á sama ári hófst sameiginlegt markaðsátak hjá stjórnvöldum og ferðaþjónustunni og fjölgun ferðamanna varð hraðari.
Í nóvember árið 2011 var myndað íslenskt lággjaldaflugfélag sem heitir WOW air og tók það við rekstri Iceland Express í október og með lággjaldaflugi varð enn meiri fjölgun á ferðamönnum. Markaðssetning Íslands varð mun meiri á árunum 2012 til 2017. Kvikmyndir og tónlistarmyndbönd hafa verið tekin upp á Íslandi og margar fréttir eru gerðar um landið. Einnig koma frægir einstaklingar til Íslands. Til dæmis kom Justin Bieber til landsins og hélt tónleika tvisvar sinnum árið 2017. Einnig hafa hjónin Beyonce og Jay Z, ásamt David Beckham heimsótt Ísland, svo dæmi séu tekin. Þegar frægt fólk ferðast til einhvers lands skapast umræða um landið og þá koma oft fleiri ferðamenn þangað.