Eftir svona mikla ferðamannafjölgun hefur Ísland grætt mikið. Þegar ferðamenn koma til landsins fara þeir oftast í ferðir og borga þeir því auðvitað ferðaþjónustunni fyrir það og þannig höfum við grætt á þeim. Líka auðvitað með að það eru fleiri að versla vöru og þjónustu, til dæmis gistingu sem eflir efnahagslífið. Ferðamennska eykur umburðarlyndi okkar. Við erum orðin þekkt þjóð og þegar Íslendingar fara t.d. til útlanda eru margir sem ná að giska að við séum frá Íslandi, sérstaklega á Spáni. Störfum fjölgar, ekki bara í ferðamannabúðum heldur flestum búðum Íslands, en sérstaklega í ferðamannabúðum, ferðaskrifstofum og störfum sem tengjast ferðamönnum. Auk þess þarf meiri varning í verslunum af því að það koma fleiri í verslanirnar.
Gallar
Út um all Ísland er fullt af ferðamönnum og eru ekki margir sem fara eftir reglum né fara vel með náttúru Íslands. Þeir skilja eftir sig drasl og meira að segja gera þarfir sínar þar sem þeir vilja. Einnig eru sumir ferðamenn ekki vanir íslenskum aðstæðum og fara ekki nægilega varlega. Þetta hefur valdið alvarlegum slysum og dauðsföllum sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með meiri fræðslu til ferðafólks. Ferðamenn eru líka að koma upp að húsum hjá fólki og spyrja hvort þeir meiga tjalda í görðum þeirra og eru þeir líka að tjalda á óviðeigandi stöðum í staðinn fyrir að tjalda á tjaldsvæðum. Verðið á Íslandi hefur hækkað um 10% og hluti af ástæðunni er út af ferðamennsku. Það er leiðinlegur galli og eru líka Íslendingar sem finnast þetta líka orðið of dýrt. Þegar við fórum í Perluna þá komumst við að því að þau hafa breitt kaffihúsinu í ferðamannabúð og það er byrjað að láta fólk borga fyrir næstum allt. Einu sinni var frítt að fara út á svalir til að sjá útsýnið en núna kostar það 460 krónur að fara þarna út fyrir fólk eldri en 15 ára. Við tókum líka eftir að það er búið að taka gosbrunninn sem mörgum fannst það skemmtilegasta við Perluna.