Þrjár af okkur stelpunum vorum upphaflega í vandræðum með að finna hvað við ættum að gera í lokaverkefninu en síðan bættist sú fjórða í hópinn og verkefnið var komið á skrið. Við ákváðum að fræðast um ferðamennsku á Íslandi og út af áhugamálum okkar gerðum við kynningarmyndband um Reykjavík, myndasyrpu úr miðbænum, vefsíðu, ferðabækling og trékarl sem var í laginu eins og hefðbundinn ferðamaður til að nota á básnum okkar.
Fyrstu tvær vikurnar fóru í það að fara þrisvar niður í bæ til að taka viðtöl við ferðamenn og taka myndir af einkennisstöðum miðbæjarins.
Við lentum í tæknilegum erfiðleikum í byrjun sem við náðum að leysa og byrjuðum á því að flokka myndböndin út frá því hvað við ætluðum að nota og hvað ekki. Síðan var byrjað að klippa saman og sett var lag við kynningarmyndbandið.
Við skiptum með okkur verkum þannig að tvær okkar unnu í myndböndunum og hinar fundu upplýsingar til að svara rannsóknarspurningunum, sem eru kaflarnir á þessari vefsíðu. Í næst seinustu vikunni byrjaði ein úr hópnum að smíða hluta af afurðinni fyrir hópinn, sem er ferðamaðurinn sem var gerður úr tré.
Okkur gekk vel að vinna vefsíðuna. Við fundum góðar myndir og náðum að setja það sem við vildum á síðuna.
Ransóknarspurningin okkar var ,,Hvers vegna vilja ferðamenn koma til Íslands?".
Við fundum það út með því að fara yfir svörin frá ferðamönnunum sem við tókum viðtöl við. Einnig lásum við margar greinar á internetinu um ferðamennsku á Íslandi. Þar fundum við út að flestir ferðamenn koma til Íslands til að upplifa náttúrufergurð landsins. Það stemmir við niðurstöður úr viðtölunum okkar þar sem um 70% fólksins sagðist koma til landsins vegna náttúrunnar.
Viðmælendur okkar voru frá Bandaríkjunum, Kanada, Nýja Sjálandi, Englandi, Austurríki og Kóreu. Tilgangur heimsókna þeirra var misjafn. Brúðkaupsferð, vinnuferð, náttúruskoðun og fjölskylduferð en meðallengd dvalarinnar hjá viðmælendum okkar var ein og hálf vika. Þau voru voru öll sammála um að Íslendingar væru kurteis þjóð og vingjarnleg. Hins vegar voru margir óánægðir með verðlagið sem þeim fannst allt of hátt. Auk þess ræddum við veðrið við ferðamennina og þau voru öll sammála því að það væri ekki hægt að treysta á verðrið á Íslandi. Þrátt fyrir það vilja flestir heimsækja landið okkar aftur, á næstu 10 árum.
Hér fyrir neðan getiði séð myndir sem við tókum í miðbæ Reykjavíkur og tvö myndbönd, annað þeirra er viðtöl sem við ferðamenn og hitt er myndband sem sýnir flotta staði í Reykjavík.